Ég var í sundi 15. maí og þegar ég var í sturtunni er stelpa þar á sama tíma.. sirka 8 eða 9 ára og er mikið að horfa á mig og pæla í mér.. segir svo loks "borðar þú ekki mikinn mat?" ég hélt ég hafði heyrt e-ð vitlaust eða væri ekki aðt ala við mig því ég þekkti hana ekki neitt.. hún endurtók spurninguna.. ég svaraði " jú veistu ég borða alveg hrikalega mikið! ég er alltaf borðandi"
hún var frekar hissa og sagði "afhverju ertu þá svona mjó?"
ég" af því að sumir eru bara þannig, eru grennri en aðrir.. svo hleyp ég reyndar líka mjög mikið"
Hún "ég get líka verið mjó..." og dró magann eins mikið og hún gat inn..
... svo kom mamma hennar og við það lauk þessum innihalds miklu samræðum okkar..
Það er skrítið þegar ég kem aftur á Ísland og í sveitina þá er eins og ég hafði aldrei farið.. reyndar nokkrar nýjar búðir á Íslandi en mér finnst einhvern vegin eins og tíminn standi í stað hérna.. það er auðvelt að detta inn í rútinuna hérna strax.. sem er í raun að vinna eins og maður getur á hverju degi í sveitinni og fara að sofa örmagna.. fara til mömmu reglulega í hádeginu og fá heitan mat.. nákvæmlega sömu samræðurnar við pabba... þegar ég er hér finnst mér eins og ég geti ekki farið aftur, það er nóg að gera og mér finnst ég þurfa að vera hér til að sjá um þetta allt saman.. nóg að gera í sveitinni, verkefni, sala og pantanir sem ég gæti sinnt.. Þetta er ágætis líf.. en ég er samt svo ánægð að ég fór til Svíþjóðar.. það er svo allt annað líf þar.. nýjar áherslur og meiri og betri einbeiting að íþróttinni.. ég er nokkuð viss um að eftir nokkur ár þegar ég verð búin að kreista það besta úr mér í frjálsum þá mun ég koma í sveitina og ekkert hefur breyst..
ég er bara að skrifa þetta í þeim tilgangi ef það er einhver að lesa þetta sem langar að prófa e-ð nýtt en finnst bara ekki geta farið.. óhugsandi að fara frá þessu lífi, maður "kann" ekkert annað.. einfaldast að vera bara heima.. en ég mæli með að prófa e-ð nýtt.. það er alltaf hægt að koma bara aftur heim.. ég tala nú ekki um þegar maður er ungur og engin börn og svona..
Það var svo ótrúlega gott móment á mánudaginn þegar ég tók æfingu í sveitinni í storminum.. Ég var að gera æfinga á ca. 100m kafla. og ca 50m af því var nokkurn vegin í skjólin frá trjám. Þegar ég var að hlaupa þarna fram og til baka þá var Vinur (hundurinn hans pabba) ekki að nenna að hlaupa með mér þar sem var ekki í skjóli.. heldur lagðist og beið þangað til ég kom í skjólið og hljóp þá með mér.. haha.. svo lögðumst við niður inn í garði þar sem var alveg skjól.. og lögðumst í "sólbað" Vinur lagðist á bakið alveg eins og ég.. haha.. þetta var e-ð svo skondið, þessi hundur er svo fyndin.. í gær var hann svo ánægður að hann brosti.. ég er að meina það! Jóhanna siss er vitni af því líka!

60 ára afmælisbarið hann pabbi minn..

Yndislega sveitin mín.. Hér erum við pabbi að sá rófunum..
Rétturinn smakkast alveg hreint ótrúlega vel þó ég segi sjálf frá og ég hef fengið mikið lof frá vinum og kunningjum sem hafa smakkað hann. Hann kostar 1.690 kr og er í boði út miðvikudaginn svo ég hvet alla eindregið til að fara og fá sér eina Ásdísi og styðja þannig í leiðinni við bakið á mér í undirbúningi mínum fyrir Ólympíuleikana. Þar sem mikið hefur verið spurt hvort ekki sé hægt að styrkja mig meira eða á annan hátt ef fólk kemst ekki á Saffran hefur nú verið stofnaður bankareikningur þar sem hægt er að leggja inn frjáls framlög. Hér eru reikningsupplýsingarnar: Reikningsnúmer: 0137-15-634000Kennitala: 281085-2639 Ég er ofboðslega þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef þegar fengið. Ég mun gera mitt allra besta til þess að standa mig sem allra best í sumar og þá sérstaklega á Ólympíuleikunum sjálfum til að gera alla þá sem staðið hafa við bakið á mér á einn eða annan hátt stolta. Það er ekkert blogg búið að koma frá mér nýlega, biðst afsökunar á því. Ég kom heim úr æfingabúðum á sunnudaginn var frá Nerje á Spáni. Það er alltaf yndislegt að fara í æfingabúðir
Ég ferðaðist óvenju mikið í þessum æfingabúðum. Það voru 2 hvíldar dagar og annan daginn fóru allir saman til Granada borgina, ætluðum að skoða Sierra Nevada en það er frekar hátt uppi og við gætum ekki farið að skoða það því að það var ófært útaf snjó!! á Spáni! niðri var 7°C og rigning.. mjög kalt! Við skoðum líka Alhambra það var mjög flott. Hinn hvíldardaginn fór ég í Afríkuferð. Vorum þrjú saman keyrðum til syðsta hluta spánar (komum við í Gibraltar til að smella mynd) og sigldum frá Tarifa yfir til Marokkó.
Síðan ákvað ég að keppa á móti sem var í Malaga síðasta daginn. Það var ekki beint í prógraminu að keppa, þ.e.a.s að vera komin í keppnisform og ná góðum árangri en mig langaði að sjá hver staðan væri á mér og svo finnst mér líka svo gaman að keppa. Heppnin var alveg í hámarki þennan dag þar sem það var alveg svakaleg rigning, þetta var þriðji dagurinn á síðast liðnum 6 mánuðum sem það rigndi í borginni, á síðast liðnum 6 MÁNUÐUM!! og þegar það er rigning á Spáni þá eru spánverjar ekki mikið fyrir það að fara út þannig það var frekar fáment á mótinu.
Ég keppti í 100m grind og 400m hlaupi. Byrjaði á grindinni en áður en ég keppti þá var ég orðin blaut inn að beini þrátt fyrir að vera í regnfötum! það var samt hlýtt og ég var á hreyfingu.. við vorum svo bara 2 að hlaupa grindina.. og hvað haldiði.. hin stelpan þjófstartaði! þannig ég hljóp þá bara ein! Það var mjög fyndið þegar hann sagði á spænsku "takið ykkur stöðu" þá vissi ég ekkert hvað hann var að segja því hann var búinn að vera tala í talstöðina til að segja að stelpan hafði þjófstartað.. og ég gerði mér ekki grein fyrir því strax að ég ætti að taka mér stöðu.. haha.. fyrsta keppnin á spáni! ;)
Hlaupið gekk vel fílaði mig ágætlega.. en ég var auðvitað ein þannig maður er einhvernvegin alveg 100%.. og þessvegna var ég svo rosalega hissa þegar ég sá tímann minn sem var 14,63sek!og vindur 0,0.. það er næst hraðasta hlaupið mitt á ævinni, það hraðasta er 14.60 síðan á landsmóti 2009.. ég var alveg í skýunum!
Svo var tæpir 2 klst í að ég átti að hlaupa 400m.. þessi bið var köld.. ég var öll svo blaut eins og fyrr sagði.. ég skalf og tennurnar glömruðu.. ég byrjaði svo aftur að hlaupa og hreyfa mig töluvert löngu áður en ég geri venjulega.. ég varð að fá hlýju aftur.. það stytti svo upp fyrir hlaupið en þá varð einhver seinkun og ég þurfti að bíða í 15 til 20 mín!.. Loksins fékk ég að hlaupa og fílaði mig rosa vel.. aldrei liðið svona vel í fyrsta keppnis 400m hlaupi.. mér leið kannski aðeins of vel, hefði átt að vera þreyttari því að tíminn var ekkert frábær eða 58,71.. þetta er samt mjög góð byrjun og veit núna að ég á meira inni og komin með betra sjálfstraust í að hlaupa hraðar í byrjun í næsta hlaupi..
Næsta mót hjá mér verður vonandi á Íslandi í næstu viku en ég er að koma á landið seint á fimmtudaginn og verð í viku..
Hér koma nokkrar myndir frá ferðalaginu:

"Svalir Evrópu" þær eru í Nerje .. hér er hluti af hópnum að hoppa á þeim.. en við vorum als 37 með öllum í þessari ferð!

Þessi mynd er frá Alhambra.. það var rigning, væri eftirvill fallegra í sól

Önnur mynd þaðan.. hluti af garðinum, hluti af kastalanum fyrir aftan.. og hluti af Granada borgin þar fyrir aftan
Svo var æft.. kasta kúlu aftur á bak

Farið á ströndina

Svo límdust steinarnar við mig..

Gibraltar
Flottur stimpill sem ég fékk í vegbréfið
Það voru markaðir allstaðar þar sem borð komst fyrir! ólík menning þarna.. sjáið það t.d bara á klæðnaðinum hjá fólkinu sem sést á þessari mynd
Rosa mikið af köttum útum allt.. og mjög skítugum (eins og öll borgin) og vantaði oft á þá skottið eða eyrað! þeir voru líka inn á veitingastöðunum! einn veitingarstaður sem við fórum á reyndist ver mjög "skítugur" sáum t.d þjón sem missti brauð á mjög skítugt gólf, tók það upp setti það aftur í körfuna og lét það á borð hjá fólki! þetta sáum við eftir að vera búin að borða þarna! maginn á mér er ennþá að jafna sig!
Það var alveg fáranlega þröngt á milli húsanna þarna! eins og hér þá er auðveldlega hægt að teygja sig yfir í gluggan hjá nágrannanum!
Mynd tekin frá keppninni í Malaga.. ég er í hlýrabol merkt Falun IK en það er liðið sem ég keppi með hérna úti. Video af hlaupunum má sjá hérna fyrir neðan: Jæja það fór þá aldrei þannig að prófatörnin tæki ekki enda, þó það liti út fyrir það á tímabili. Ég er nú alltaf að reyna að læra af reynslunni og eitt af því sem ég tel mig hafa komist að er að það tekur um það bil allt (og rúmlega það) enda, hvort sem manni líkar það betur eða verr. Annað sem ég het tekið eftir er að þegar eitthverju lýkur þá tekur yfirlett eitthvað annað við. Ég hef reyndar ekki reynslu af dauðanum og get því miður ekki sagt hvað tekur við að lífinu loknu. Enda er það svo sem ekkert sem maður þarf að hafa áhyggjur af.
En hvað um það, hvað tekur þá við að loknum prófunum? jú vissulega sumarfrí, geng ekki svo langt að segja að sumarið taki við en það hlýtur að koma í kjölfarið. Það er nú bara á topp 10 af öllu sem ég geri að ganga frá skóladótinu að loknum prófum. Það finnst vera upphaf sumarfrísins þegar síðustu skólabækurnar fara inn í skáp og krassblöðin í ruslið, það er ljúft. Það hefur nú enn farið heldur lítið fyrir vorhreingerningunni sem ég sá í hillingum í prófunum. Ekki bara það að sjarminn af hreingerningum minnkar aðeins þegar ég þarf ekki að vera að læra heldur fór stór hluti hreingerningagræanna minn ansi illa út úr hræðilegur lýsisslysi sem varð hérna.
Það var einn mánudagsmorgunn að ég var hálf buguð. Enda var þetta enginn venjulegur mánudagsmorgunn, heldur mánudagsmorguninn eftir norðulandamótið þar sem ég gerði ekki nógu gott mót. Sem sagt þegar ég opnaði augunn þennan morguninn þá hvarlaði það að mér að loka þeim bara aftur og eyða deginum í rúminu, það myndi hvort sem er ekki gerast neitt markvert þennan daginn. Mér tókst þó að stappa í mig stálinu og komið mér framúr, það væri ekki annað í stöðunni en fara á fætur og fara strax að vinna í því sem miður fór. Fyrsta skrefið yrði að sjálfsögu að fá mér morgunmat og taka lýsið. Það hlýtur að vera grunnur af betri líðan og auku afli. Það fór þó ekki betur en svo að lýsisflaskan endaði í ótlabrotum og fagurgulur vökvinn breiddi úr sér á eldhúsgólfinu…..Þá fyrst helltist bugunin yfir mig og ég óskaði þess að ég hefði fylgt innsæinu og hladið mig í rúminu ! Að þrífa þetta upp held ég að hafi verið ein mesta barátta sem ég hef á ævi minni lent í, ég get svo svarið það og ég bar þess ekki bætur lengi á eftir. Íbúðin angaði af lýsi í marga marga daga, allar tuskurnar og skúringafata fór beina leið á haugana. Síðan þá hef ég ekki tekið lýsi (er þó bara nokkuð heilsuhraust, enn sem komið er í það minnsta) og sé ekki fram á að innbyrða það í fljótandi formi í bráð. Þannig að, ef einhverjum vantar áskorun í líf sitt þá er ágætis lausn að smalla eitt stykki lýsisflösku á eldhúsgóflinu.
En um helgina gerði ég örstutt stopp í sveitinni þar sem að sauðburðurinn er að skríða af stað, ekki langt að bíða þess að tryllingurinn taki öll völd. En mikið eru ungviðin mikil krútt !


Þessi litli krúttukálfur var kannski ekki sá hressasti sem ég hef hitt. Hann kippti sér ekkert upp við það þó ég atðist í honum. En sætur er hann :)

Það gekk heldur illa að fá þennan til að horfa í myndavélina

Bara aðeins að kíkja….

Alltaf gott að kúra á mömmu sinni ;)
Jæja tími til að koma eitthverju í verk loksins þegar maður er laus undan klafa námsbókanna :P
Njótið dagsins
GG
Ég hélt það út að búa í Svíþjóð í 10 mánuði áður en ég lét hégómagirndina ráða för og keypti mér iPhone. Það eiga nefnilega allir, og þá meina ég ALLIR iPhone hérna. Í æfingagrúppunni minni vorum við bara tvær sem áttum ekki iPhone og nú eiga allir iPhone, því Lísa fór og keypti sér iPhone tveimur dögum eftir að ég fékk minn :P
Ég lofaði mér því þó þegar ákvörðunin var tekin að ég myndi ekki umbreytast í einn af þessum heilaþvegnu iPhone eigendum, þ.e. ekki verða ein af þeim sem einskorðar samskipti sín við aðrar manneskjur í gegnum allskonar mismunandi „öpp“ s.s. twitter, instagram, facebook, WhatsApp og svo framvegis… Ég lofaði mér því líka að ég myndi ekki vera ein af þeim sem situr í hóp annarra og tek ekki þátt í þeim umræðum sem eiga sér stað heldur hef hugann allan við að spila einhvern helvítis orðaleik eða teiknileik við félaga minn sem ekki er á staðnum, eða jafnvel, jafn heimskulegt og það er, situr beint á móti mér! Þetta á sérstaklega við ef það eru einhverjir í hópnum sem ekki eiga iPhone (nú tala ég af biturri reynslu). Ef að allir í hópnum aftur á móti vilja spila leiki í gegnum iPhone er ég alveg tilbúin til þess að taka þátt í því, enda ekki ósvipað því að spila spil. Við Sibba spiluðum t.d. jatsí í símanum um síðustu helgi og var það einkar handhægt… þangað til reyndar Sibba ýtti óvart á vitlausan reit svo hún fékk núll í sexur í staðinn fyrir 20 stig í fimmur. Úr varð að Sibba fór í fýlu og vildi ekki spila meira, þannig að gamla góða jatsíið þar sem hægt er að stroka út og skrifa sjálfur er í rauninni mun hentugra, fyrir utan að þá þarf maður sjálfur að leggja saman stigafjöldann að lokum.
Ég get þó ekki sagt að ég hafi staðið við þetta loforð mitt þessar tæpu tvær vikur sem ég hef haft gripinn undir höndunum. Sem betur fer er fólk duglegt við að benda mér á það þegar hegðun mín er orðin of símamiðuð og kann ég því fólki miklar þakkir! Þannig að plís, ef þið sjáið mig vera svo upptekna af símanum mínum að ég taki ekki eftir flugskeytaárás í nágrenninu þá vinsamlegast sláið mig utanundir!
Það verður að viðurkennast að svona iPhone býður upp á ansi hreint marga möguleika. Nokkur af mínum uppáhalds „öppum“ eru t.d.
TED: Þarna er hægt að hlusta og horfa á þvílíkt magn af allskonar fyrirlestrum um allt milli himins og jarðar. Yfirleitt nota ég t.d. bara leitarorðin „happiness“ og „health“ og þá koma upp ótrúlega margir áhugaverðir fyrirlestrar. Mér finnst líka alveg sérstaklega gott að sofna út frá svona talandi máli…..
Instagram: Þú tekur mynd og getur breytt henni á ýmsan hátt og svo póstar þú henni svo að vinir þínir og aðrir sem fylgjast með þér á Instagram geta séð. Virkar nokkurnveginn eins og Twitter, bara miklu skemmtilegra :P
Quotes wp: Allskonar tilvitnanir og annað skemmtileg með ýmsun skemmtilegum myndum, einstaklega skemmtilegt að flétta í gegnum. (vá, mér tókst að koma orðinu “skemmtilegt” þrisvar sinnum fyrir í þessari setningu, geri aðrir betur)
Kokaihop.se: Fullt af skemmtilegum uppskriftum og sérstaklega skemmtilegt að það er alltaf ein uppskrift dagsins sem að maður kemst varla hjá að skoða. Mjög skemmtilegt fyrir svona matarnörda eins og mig :P
Yatzy: Já eins og ég nefndi hérna áður þá er hægt að spila yatzy í símanum og það sem meira er, það er hægt að spila yatzy við símann! Þannig að ég þarf ekki lengur að snúa upp á handlegginn á einhverjum til þess að spila yatzy við mig, síminn fullnægir þörfum mínum :P
Fyrir utan þessi „öpp“ (Jæja Gróa íslenskufrumuður, er ekki hægt að íslenska þetta orð?) downloada ég mikið af allskonar pod-köstum (hlaðvörpum?) og hugleiðslum. Svo er einstaklega þægilegt að nota skype til þess að hringja heim, geta séð hvernig veðrið verður næstu daga og hlusta á íslenskt útvarp á æfingu!
Best finnst mér samt myndavélin. Núna er ég með myndavél með mér svo gott sem hvert sem ég fer og tek þar af leiðandi miklu fleiri myndir. Svo er ég með allskonar forrit svo ég geti breytt myndunum á skemmtilegan hátt, það finnst mér alveg sérstaklega gaman.
Eins og sjá má þá er ég einstaklega ánægð með iPhoneinn minn og hlakka til að kynnast honum betur :P